Tapas og bjorkrukkur
í gær fórum við félagarnir og vengum okkur í klas og átum spænskasmárétti. Þar mátti sjá steiktar sardínur, stórar bjúgur, brauð med tómatsafa og kartöflur með kokteilsósu eda kartöflusósu einsog þeir kalla hana hér. Drukkum við saman stórar bjórkönnur, ég er búinn að kleyma fjöldanum vegna þess að ég er svo mikil hænuhaus. Þjónustan var ekki mikil enda húsfreyjan mjög reið við þjóninn, sagði að hann fær un inutil. Skólinn byrjar sautjánda þannig að hér er allt rólegt. Það var óþarfi að setja á sig safarihattinn í leit að íbúð. ég fékk herbergi sama dag og ég kom til Barca. Það er lítið og ljótt og er mjög hátt til lofts. ég sest bara rólegu niður og leita að annari aðstöðu fyrir mig seinna, þegar markaðurinn róast.